25 m2 bústaður í Helgafellssveit um 12 km frá Stykkishólmi.
Bústaðurinn er búinn öllu því sem til þarf til að útbúa mína eigin máltíð. Senseo kaffivél kaffipúðar innifaldir , ristavél,pottar, panna, eldhúsáhöld ofn, eldavél, ísskápur með litlum frysti. Úti gasgrill (gas innnifalið).
Baðherbergi með sturtu og hárþurku.
Það eru rúm fyrir 4 , 1x rúm 90×200 3x svefnsófi 140×200. Sængurver/koddaver og handklæði innifalið.
Háhraða net (ljósleiðari) wifi , sjónvarp, dvd.
Í Stykkishólmi sem er 12 km frá bústaðnum er matvörubúð Bónus.
Veitingastaðir:
Skúrinn, Sjávarpakkhúsið, Narfeyrarstofa. Einnig Pizza Stykkið við hliðina á Bónus, Bakarí , Olis , pulsuvagninn , niður á höfn er ískofinn og fish&chips.
Afþreying:
Góð sundlaug með heitum pottum þar sem borholuvatn er dælt í þá og er vatnið með álika efnum og í bláa lóninu.
Söfn, eldfjallasafn,vatnasafn, Norska húsið, hákarlasafnið að Bjarnarhöfn Helgafellssveit, æðadúnsafnið.
Gallery , Leir 7, Tang og Riis handverk Ingibjargar Ágústssonar.
Sæferðir, allskonar ferðir td viking sushi, gourmet, taste of Iceland, Flateyjarferðir.
Ocean adventures (á facebook).
Way out west travel ( á facebook).
Einnig getur þú tekið ferjuna Baldur yfir til vestfjarða.
Snæfellsþjóðgarður er í 60 km fjarlægð og Kirkjufell í 30 km fjarlægð.
Einnig er kjörið að fá sér gönguferð frá bústaðnum og upp í fjall eða niður í fjöru eða inn í Sauraskóg þar sem Skógræktin hefur grætt upp skóglendi.